flugfréttir

Ryanair mun bæta við 144 nýjum flugleiðum í ár

- Mesta aukningin verður um Frankfurt-flugvöll

7. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:25

Boeing 737-800 þotur Ryanair

Ryanair mun stækka leiðarkerfi sitt enn frekar á þessu ári og þá sérstaklega í haust þegar félagið mun byrja að fljúga 144 nýjar leiðir innan Evrópu.

Þá mun félagið breyta 51 flugleið og gera fjölda borga að heilsársáfangastöðum sem hafa í dag verið flogið til aðeins yfir sumartímann.

Ryanair er stærsta flugfélag Evrópu er kemur að farþegafjölda en í fyrra rauf félagið „hundrað milljóna múrinn“ er félagið varð fyrsta flugfélagið í heiminum til að flytja 100 milljónir farþega á 12 mánaða tímabili.

Í fyrra flugu 116 milljónir með Ryanair en í 2. sæti í Evrópu kom Turkish Airlines sem fluttu 62.8 milljónir farþega það árið.

Af þeim 144 nýju flugleiðum sem Ryanair mun byrja að fljúga næsta haust þá verður mesta aukningin á leiðum til og frá flugvellinum í Frankfurt en í þessum mánuði einum mun félagið byrja að fljúga frá Frankfurt til Alicante, Faro, Malaga og til Mallorca.

Ryanair mun byrja að fljúga til 20 borga frá Frankfurt í október en þá mun félagið einnig hefja flug til 28 áfangastaða frá Berlín, Hamborg, Memmingen, Nuremberg, Karlsruhe og frá Bremen.

Þessi gríðarlegu umsvif Ryanair sem fyrirhuguð eru frá þýskum flugvöllum munu setja aukna pressu á Lufthansa sem hefur reynt að svara samkeppni lágfargjaldafélaganna með dótturfélaginu Eurowings.

Sem dæmi má nefna þá á pólska borgin Krakow von á 14 nýjum áfangastöðum í ár þegar Ryanair mun hefja flug frá henni til Aþenu, Barcelona, Berlín, Franfkurt, Glasgow, Gautaborg, Lamezia, Lissabon, Lourdes, Malmö, Marseille, Napólí, Nuremberg, Pescara, Porto, Prag, Sevilla, Tel Aviv, Treviso og Valencia.

Þá mun Ryanair bæta 10 borgum við Edinborg og það sama gildir um Eilat Ovda flugvöllinn í Ísrael og Sevilla á Spáni sem fá tíu borgir hvor í leiðarkerfið og þá mun Ryanair hefja flug frá Kaupmannahöfn til sjö flugvalla í ár sem eru London (Stansted), Napólí, Pescara, Sevilla, Thessaloniki, Valencia og Zadar.

Ryanair hefur í dag 372 þotur í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737-800 en félagið á von á 93 til viðbótar af þeirri gerð auk 100 véla af gerðinni Boeing 737 MAX 200.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga