flugfréttir

Samtök flugfélaga í Ástralíu og Nýja-Sjálandi stofnuð

- A4ANZ munu berjast fyrir ýmsum hagsmunamálum í fluginu

9. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:29

Flugvélar Tigerair, Jetstar og Qantas

Fjögur flugfélög frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi hafa ákveðið að stofna flugfélagabandalag fyrir þau flugfélög sem koma frá löndunum „undir niðri“.

Bandalagið kallast A4ANZ (Airlines for Australia and New Zealand) og eru aðildarfélögin Qantas, Virgin Australia, Air New Zealand og Regional Express.

Í sameiginlegri tilkynningu frá félögunum kemur fram að bandalagið mun verða málsvari fyrir ýmis málefni og hagsmunamál er kemur að fluginu í löndunum tveimur.

Graeme Samuel, fyrrum yfirmaður samkeppnisráðs Ástralíu, hefur verið valin formaður A4ANZ og þá mun hvert flugfélag velja sér fulltrúa til að sitja í stjórn bandalagsins.

Tvö önnur flugfélög munu verða aðilar að samtökunum á næstunni sem er Tigerair og Jetstar, dótturfélag Qantas.

Flugvallarmál og flugvallargjöld verða helst í deiglunni en Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qatnas, segir að lendingargjöld og þjónustugjöld á flugvöllum eru að hækka með hverju árinu á sama tíma og flugfélög hafa lækkað fargjöld sín umtalsvert.

Joyce segir að A4ANZ ætlar að berjast fyrir því að stjórnvöld reyni að bæta úr þeim málum til að tryggja rekstur flugfélaga og sjá til þess að þau geti dafnað í samkeppnishæfu umhverfi fyrir farþega í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga