flugfréttir

SAS þjálfar 18 flugstjóra fyrir flug til Færeyja

- Færeyskur flugstjóri hjá SAS meðal þeirra - Hefur samt aldrei lent í Vágar

15. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:18

Aðflugið að Vágar-flugvellinum í Færeyjum séð út um stjórnklefa á Airbus-þotu Atlantic Airways

Aðeins nokkrir útvaldir flugmenn hjá Scandinavian Airlines munu koma til með að fljúga til Færeyja þegar áætlunarflug SAS hefst til Vágar-flugvallarins í næstu viku.

Það er þekkt staðreynt að veður og vindar hafa gert meira að segja þrautreyndum flugmönnum erfitt fyrir í Færeyjum.

Airbus-þotur færeyska flugfélagsins Atlantic Airways eru til að mynda útbúnar sérstökum leiðsögubúnaði sem nefnist „Required Navigation Performance“ (RNP) sem auðveldar aðflugið að flugvellinum í Vágar.

Þar af leiðandi hefur SAS sett saman hóp 18 flugstjóra sem munu fljúga til Færeyja en þeir hafa gengist undir sérstaka þjálfun til að fljúga til Vágar-flugvallarins og munu þeir hafa í för með sér aðstoðarflugmenn sem munu í leiðinni fá þjálfun fyrir Færeyjar.

Næstkomandi föstudag, þann 17. mars, munu flugstjórarnir hefja þjálfun í flughermi en meðal flugstjóranna átján er Herálvur Nielsen sem er Færeyingur en hann hefur flogið fyrir SAS í 20 ár.

Herálvur Nielsen hefur flogið fyrir SAS í yfir 20 ár

Þrátt fyrir að Herálvur sé fæddur og uppalinn í Færeyjum þá hefur hann sjálfur aldrei lent flugvél í Vágar en hann hefur allan sinn atvinnuflugmannsferil flogið fyrir SAS og þar á undan lærði hann að fljúga í hernum.

Krefjandi flugvöllur til að lenda á

„Flugvöllurinn er staðsettur milli tveggja fjalla sem skapar mikla sviptivinda sem standa þvert á brautina sem skapar oft mikla ókyrrð í aðfluginu“, segir Herálvur en margir flugmenn luma á skrautlegum sögum um lendingar í Færeyjum.

Herálvur segir að ef ókyrrðin og sviptivindarnir eru of miklir þá þarf oft að gera aðrar áætlani á borð við að fara í biðflug en í versta falli þarf að annað hvort að snúa við eða lenda á varaflugvöllum.

Herálvur segist ekki hafa miklar áhyggjur yfir þeirri undarlegri stöðu að hann sé Færeyingur að fljúga fyrir SAS sem verður andstæðingur í samkeppni við Atlantic Airways sem er hans heimaflugfélag.

„Það er samkeppni allsstaðar í heiminum og það er ekkert sem ég get gert í því. Sem flugstjóri þá má ég ekki láta mínar ákvarðanartökur stjórnast af samkeppni. SAS er minn atvinnurekandi“, segir Herálvur.

SAS mun hefja flug til Færeyja frá Kaupmannahöfn þann 26. mars en Atlantic Airways hefur í mörg ár verið eina flugfélagið sem hefur tengt eyjarnar við Danmörku.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga