flugfréttir

Tvö bandarísk flugfélög hætta að fljúga til Kúbu

- Of mikið framboð af flugi milli Kúbu og Flórída

16. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:22

Hálft ár er síðan að fyrstu bandarísku flugfélögin byrjuðu að fljúga til Kúbu

Að minnsta kosti tvö bandarísk flugfélög hafa ákveðið að hætta að fljúga til Kúbu aðeins sex mánuðum eftir að þau fengu leyfi til að byrja að fljúga til eyjunnar eftir 50 ára hlé.

Silver Airways hefur ákveðið að hætta að fljúga til þeirra níu áfangastaða sem félagið hóf að fljúga til í fyrra á Kúbu en þeir eru Camaguey, Cayo Coco, Cienfuegos, Holgúin, Manzanillo, Santa Clara, Santiago og Varadero.

Þá hefur Frontier einnig ákveðið að hætta að fljúga milli Miami og Havana en félagið segir að allt of mikið framboð sé á flugsætum milli Flórída-skagans og Kúbu og sé flugið þar af leiðandi ekki arðbært þar sem sætanýtingin dreifist á of mörg flugfélög.

Southwest Airlines og JetBlue fljúga einnig til Kúbu frá Flórída en JetBlue og American Airlines hafa meðal annars dregið úr framboði sínu til Kúbu án þess að hafa skorið niður áfangastaði sína.

Gary Kelly, framkvæmdarstjóri Southwest Airlines, segir að hann sé endalaust spurður út í hvernig félaginu gengur að fljúga til Kúbu.

„Það eru aðeins tvö og hálft ár síðan að við fórum að fljúga millilandaflug yfir höfuð. Við höfum engar væntingar ennþá og það er erfitt að segja til um með Kúbu þar sem það hefur enginn flogið til Kúbu í hálfa öld“, segir Kelly.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga