flugfréttir
Yfir 40 flugmenn yfirgefa Air Costa vegna vangoldinna launa
- Flugfélagið hefur ekki flogið áætlunarflug frá 28. febrúar
Embraer E170 þota Air Costa á flugvellinum í Bangalore
Alls hafa 44 flugmenn sagt upp störfum og yfirgefið indverska flugfélagið Air Costa sem hefur neyðst til þess að gera hlé á starfsemi sinni.
Air Costa hefur ekki flogið áætlunarflug frá því 28. febrúar en félagið hefur meðal annars lokað
fyrir bókanir fram til maí.
Stjórn félagsins reynir nú að fjármagna fé til þess að hefja flug að nýju en fjárhagsstaða félagsins hefur verið
mjög slæm og hafa tugir flugmanna ekki fengið greidd laun að undanförnu.
Málið þykir svipa til sögu Kingfisher Airlines sem hætti starfsemi sinni árið 2012 eftir mikla erfiðleika
sem höfðu áhrif á alla starfsemi þess þar til félagið var svipt flugrekstrarleyfi sínu í kjölfar
fjölda verkfalla meðal starfsfólks þess.
Einn starfsmaður Air Costa segir að starfsfólk hafi ekki fengið greidd laun fyrir febrúar og þá hafi yfir helmingur
starfsfólksins ekki fengið laun frá því í janúar.
Fyrst fór að bera á vandamálum í rekstri félagsins í ágúst í fyrra er flugvélaleigan GE Capital Aviation Services
svipti félaginu eina Embraer-þotu vegna vangoldinna leigugjalda.
Félagið hafði árið 2016 um 600 starfsmenn en síðan þá hafa 150 manns yfirgefið félagið og þar á meðal
þrjátíu flugmenn og 14 flugstjórar.
Flugfélagið skuldar starfsmönnum sínum 64 milljónir króna í launakostnað en heimildarmaður innan
félagsins segir að Air Costa þurfi um 3,2 milljarða króna til að koma starfseminni aftur í gang en
fjárfestar eru sagðir hafa sínar efasemdir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.