flugfréttir
CS100 flogið yfir hafið frá London til New York
CS100 tilraunaþotan frá Bombardier í flugtaki á London City flugvellinum í gær á leið til New York
CSeries-þotan frá Bombardier sannaði flugþol sitt sl. helgi er einni CS100 tilraunavélinni var flogið yfir Atlantshafið frá London til New York í beinu flugi.
Seinasta laugardag fór CS100 tilraunavélin FTV2 í flugið frá London City flugvellinum áleiðis til John F. Kennedy flugvallarins í New
York en flugið tók 7 klukkustundir og 34 mínútur en vélin hafði þá lokið við prófanir með bratt aðflug á London City
flugvellinum sem höfðu staðið yfir í nokkra daga.
Bein loftlína milli London City og JFK flugvallarins er 5.570 kílómetrar en uppgefið flugþol CS100 þotunnar er 5.741 kílómetrar.
„Við hönnuðum vélina sérstaklega til að geta flogið til og frá London City flugvellinum og við sáum til þess að vænghaf
og afl hreyflanna láti vélina drífa yfir Atlantshafið“, segir Rob Dewar hjá einkaþotudeild CSeries.
Lúxusútgáfa af CS100 vélinni, með einungis Business Class sætum fyrir 40 farþega, mun geta flogið milli London og New York í beinu flugi en Dewar segir að frammistaða vélarinnar í flugi yfir Atlantshafið séu þó betri en þeir þorðu að vona.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.