flugfréttir

Flugmaður hjá American Airlines lést skömmu fyrir lendingu

30. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:01

Boeing 737-800 þota American Airlines á flugvellinum í Albuquerque

Flugmaður lést í stjórnklefa á farþegaþotu hjá American Airlines í gær er vélin var í aðflugi þegar nokkrar mínútur voru í lendingu.

Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737-800, var að fljúga frá Dallas-Fort Worth í Texas og var í aðflugi að flugvellinum í Albuquerque í New Mexico þegar flugstjórinn tilkynnti um heilsufarslegt neyðarástand um borð þar sem hinn flugmaðurinn sem var með honum í fluginu hafði skyndilega veikst.

Flugmaðurinn, sem hét William Grubbs, gekkst undir endurlífgunartilraunir í 40 mínútur eftir komuna til Albuquerque en án árangurs og var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar.

Veikindi í háloftunum eiga sér stað reglulega meðal farþega en þau eru öllu sjaldgæfari meðal flugmanna og enn fátíðara er að skyndileg veikindi flugmanns leiði til dauða.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að einn flugmaður geti lent Boeing 737 þotu í aðfluginu en það setji þó meira álag á hann þar sem hann þarf að framkvæma allar aðgerðirnar án aðstoðar.

Sambærilegt atvik átti sér stað í október árið 2015 er 57 ára gamall flugstjóri hjá American Airlines lést eftir að hann veiktist skyndilega í flugi á milli Phoenix og Boston en hinn flugmaðurinn náði að lenda vélinni örugglega í Syracuse í New York.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga