flugfréttir
Framtíð Berlin Tegel fer fyrir þjóðaratkvæðargreiðslu
- 200.000 Berlínarbúar tóku þátt í undirskriftarsöfnun
Frá Tegel-flugvellinum í Berlín
Meirihluti Berlínarbúa er alfarið á móti því að Tegel-flugvellinum verði lokað eftir að Brandenburg-flugvöllurinn nýi verður tekinn í notkun.
Alls hafa 200.000 íbúar Berlínar tekið þátt í kjöri þar sem kosið er um þjóðaratkvæðargreiðslu um
framtíð Tegel-flugvallarins
sem hefur þjónar Berlínarbúum frá fimmta áratug síðust aldar en sögu vallarins má þó rekja
aftur til ársins 1906.
Petra Michaelis-Merzbach, sem hefur yfirhönd með kosningunni, segir að safnast hafi 30 þúsund fleiri umsóknir
en nauðsynlegt var til að skjóta málinu fyrir þjóðaratkvæðargreiðslu.
Staðið hefur til að loka Tegel-flugvellinum þegar Brandenburg-flugvöllurinn verður tilbúinn
en opnun vallarins hefur verið frestað svo oft að nú er talið er að nýi flugvöllurinn verði of lítill til að anna farþegafjöldanum árið 2018 en þá er talið að Brandenburg-flugvöllur gæti opnað mögulega í fyrsta lagi.
Þjóðaratkvæðargreiðslan mun að öllum líkundum fara fram með næstu kosningum en Þjóðarverjar munu ganga
að kjörborðinu þann 24. september í haust.
Hinn sexhyrndi flugturn á Tegel var reistur á áttunda áratugnum
Það gæti þó breyst ef yfirvöld í Berlín ákveða að taka niðurstöðurnar í undirskriftarsöfnuninni gilda
og láta hana duga.
Berlín hefur haft þrjá flugvelli undanfarna áratugi sem ertu Tegel, Schöenefeld og Tempelhof en þeim síðasta
var lokað árið 2008.
Schöenefeld-flugvöllurinn verður sennilega hafður opin í einhver ár eftir að Brandenburg-flugvöllurinn verður
tekinn í gangið en áætlað er að loka honum svo síðar.
Berlínarbúar kunna mjög vel að meta Tegel-flugvöllinn þar sem hann er mjög nálægt miðbænum
og aðeins kostar 2,70 evrur að taka lestina inn í miðborgina.
„Borgarbúar í Berlín vita hversu mikilvægt það er að Tegel-flugvöllurinn verði áfram og hvaða áhrif það hefur
ef hann verður fjarlægður“, segir Sebastian Czaja, ritari frjálslynda demókrataflokksins í Þýskalandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.