flugfréttir

Fjöldi tilvika hjá Lion Air seinustu daga

- Stjórn félagsins játar að ná vart að halda í við útrás félagsins

6. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:30

Stór pollur myndaðist er eldsneyti fór að leka úr væng á Boeing 737-800 þotu Lion Air sl. mánudag á Juanda-flugvellinum í Surabaya

Lion Air þarf að gangast í gegnum töluverða pappírsvinnu þar sem félagið þarf að útskýra fjölmörg atvik sem hafa komið upp í rekstri félagsins á seinustu dögum allt frá eldsneytisleka til tilvika þar sem félagið hefur gleymt tengifarþegum og glímt við tæknilega bilun með flugtölvur í stjórnklefa.

Samgönguráðuneytið í Indónesíu hefur sent lágfargjaldafélaginu Lion Air viðvörun þar sem félagið er hvatt til að gera úrbætur í rekstrardeild félagsins þar sem of mörg tæknileg vandamál hafa komið upp sl. daga.

Svo virðist sem að Lion Air sé að vaxa það hratt að tæknideild félagsins næri ekki að uppfæra ýmis kerfi og viðhalda þeim sem verður til þess að bilunum hefur fjölgað töluvert.

Þann 3. apríl kom upp eldsneytisleki og hefur ljósmynd, sem einn farþegi tók, farið víða á Netinu sem sýnir hvar eldsneyti lekur úr hægri væng á Boeing 737 þotu þar sem hún er við brottfararhlið á flugvellinum í Surabaya.

Ljósmynd af eldsneytislekann á Twitter

Lion Air er hvatt til að gera ráðstafanir til að draga úr þessum tilvikum sem með því að gera útbætur í starfsmannadeild sinni, skipuleggja vaktir áhafna betur og þá er félagið hvatt til þess að hafa varaflugvél tiltæka þegar bilun kemur upp í flotanum.

Stjórnendur Lion Air hafa játað að tæknideildin og tölvukerfin ná ekki að halda í við útrás félagsins en Lion Air hefur stækkað umtalsvert sl. ár.

Lion Air, sem var stofnað árið 199, hefur 112 þotur í flota sínum en félagið pantaði á sínum tíma 200 eintök af Boeing 737 MAX vélinni og þá á félagið von á 226 þotum úr Airbus A320 fjölskyldunni á næstu árum.

„Við þurfum nýrri kerfi fyrir flugvélarnar og uppfæra upplýsingar og gögn fyrir þau og vonandi verður það leyst á næstu mánuðum“, segir Daniel Putut, framkvæmdarstjóri Lion Air.

Flugmálayfirvöld í Indónesíu hafa gefið Lion Air tvo mánuði til að laga vandamál sín en að öðru leyti verður sektum beitt og í versta falli verður félagið svipt flugrekstrarleyfi sínu.

Lion Air á von á 200 Boeing 737 MAX 8 þotum á næstu árum og þá á félagið eftir að fá 35 Boeing 737-900ER þotur







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga