flugfréttir

WOW air flaug í gær jómfrúarflugið til Miami

- Sjötti áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum

6. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:20

WOW air flaug fyrsta flugið til Miami í gær

WOW air flaug í gær sitt fyrsta áætlunarflug til Miami sem er jafnframt fyrstu áfangastaður félagsins í Flórída.

Miami er 28. áfangastaðurinn sem WOW air flýgur til og sá sjötti í Bandaríkjunum en félagið flýgur nú þegar til Los Angeles, San Francisco, Baltimore, Boston og Newark.

WOW air notar Airbus A330 þotur til flugsins til Miami og var fyrsta flugið í gær flogið með TF-LUV og var flugtíminn 8 klukkustundir og 37 mínútur.

„Við erum mjög ánægð með að bæta Miami við leiðarkerfi okkar, en áfangastaðir WOW air eru nú komnir yfir þriðja tuginn. Þessi sólríki staður hefur heillað margan ferðamanninn í gegnum tíðina enda einkennist hann bæði af litríkri menningu, frábærum íþróttaliðum, fjörugu næturlífi og fallegum ströndum. Með því að bjóða upp á flug á jafn lágu verði og raun ber vitni gerum við fleirum kleift að njóta lífsins í sólinni en nokkru sinni fyrr,“ segir í tilkynningu frá Skúla Mogensen, stofnanda WOW air.

TV-LUV á flugvellinum í Miami í gærkvöldi eftir 8 tíma flug frá Íslandi

Miami er flestum kunnug en borgin er þekkt fyrir Miami Beach (South Beach) sem er ein vinsælasta sólarströndin á austurströnd Bandaríkjanna sem margir þekkja úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.

Miami er næststærsta ferðamannaborg Bandaríkjanna á eftir New York en borgin er í heittempraða beltinu þar sem ríkir hitabeltisloftslag þar sem hitinn fer sjaldan niður fyrir 17 gráður á veturnar og upp í allt að 38 gráður á sumrin.

Þá er Miami einnig þekkt fyrir Florida Keys eyjaklasann sem teygir sig langt suðvestur í Karíbahafið sem hægt er að keyra yfir á leiðinni til Key West.

Þess má geta að í sumar bætast við zz fleiri áfangastaðir í leiðarkerfi WOW air í Bandaríkjunum sem eru Pittsburgh í Pennsylvaníu (hefst 17. júní) og þann 13. júlí mun félagið hefja flug til Chicago.

Myndbönd af Instagram:



WOW airlines first time in miami ......welcome....#wowair

Et opslag delt af Henry (@henryernesto87) den







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga