flugfréttir

Flugbrautirnar í Cork of stuttar fyrir Norwegian til New York

- Veltur allt á því hver raunveruleg eldsneytisnotkun Boeing 737 MAX verður

9. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:25

Norwegian mun hefja flug til Providence í sumar frá Cork og þá stendur til að fljúga einnig til New York á næsta ári

Svo gæti farið að Norwegian muni ekki geta flogið frá Cork á Írlandi til New York þar sem flugbrautirnar á flugvellinum í Cork eru mögulega of stuttar.

Norwegian hefur áform um að fljúga yfir Atlantshafið frá Cork til Bandaríkjanna með Boeing 737 MAX þotum og er fyrsta flugið áætlað þann 1. júlí í sumar til Providence í Rhode Island.

Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian, segir að á næsta ári standi til að hefja flug til Stewart International flugvallarins í New York-fylki en þar sem lengri flugbrautinn á flugvellinum í Cork er aðeins 2.133 metrar á lengd þá gæti Boeing 737 MAX ekki tekið á loft með hámarksþyngd á þeirri flugleið.

Flugleiðin frá Cork til Providence er 4.764 kílómetrar í beinni fluglínu en flugleiðin til Stewart International flugvallarins er 193 kílómetrum lengri.

Bjørn Kjos segir að þar sem Stewart-flugvöllurinn sé aðeins sunnar þá sé þetta eitthvað sem veltur allt á því hver eldsneytisnotkunin verður á Boeing 737 MAX vélunum.

„Við verðum að sjá hver raunveruleg frammistaða Boeing 737 MAX vélanna verður þegar á hólminn er komið þar sem við verðum fyrsta flugfélagið í heimi til að fljúga þessum vélum“, sagði Kjos - „Kannski munu þær verða betri en þeir hafa lofað og ef svo verður þá gætum við kannski notað vélarnar í fluginu frá Cork til New York“.

Kjos bendir á að flugvélaframleiðendur ábyrgjast eiginleika flugvéla eftir frammistöðunni í flugprófunum og í flestum tilvikum þá standa vélarnar sig betur eftir að þær eru komnar í þjónustu hjá flugfélögunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga