flugfréttir
Rússneska MC-21 þotan stóðst ekki álagspróf á vængjum
- Þurfa að styrkja vængina enn frekar
Rússneska MC-21 þotan í lokasamsetningu í verksmiðjum Irkut í borginni Zhukovsky
Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut mun þurfa að styrkja vænginn á MC-21-300 þotunni þar sem vélin stóðst ekki álagsprófanir á burðarþoli vængjanna.
Við prófanir var sett 50% meira álag á vængina en gert er ráð fyrir að þeir eigi að þola í verstu aðstæðum í farþegaflugi
og þarf styrkur vængjanna að þola slíkt álag til að standast prófanirnar.
Irkut segir að litlu hefði munað að vélin hefði staðist prófið og munaði aðeins nokkrum prósentum
en um „eyðileggingarpróf“ er að ræða þar sem fjöldi stáltauga er festur við væng vélarinnar og hann sveigður
upp á við með miklu afli sem setur bæði mikið álag á vænginn sjálfann og vængfestingarhlutann í búknum.
Irkut segir að nauðsynlegt verði að styrkja burðarþol vængsins án þess að fjarlægja vænginn af skrokknum
á tilraunavélinni en fram kemur að það mun þó ekki valda seinkunum á flugprófunum.
Airbus gekk í gegnum svipað vandamál í febrúar árið 2006 þegar vængur risaþotunnar Airbus A380 féll
á álagsprófunum en sprungur fóru að myndast í vængnum þegar hann var sveigður upp við mikið afl.
Irkut frumsýndi fyrstu MC-21-300 þotuna í júní sl. sumar en enn hefur ekki verið gefin út nein dagsetning
varðandi jómfrúarflugið en stefnt var að fljúga vélinni í fyrsta sinn í vor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.