flugfréttir

Allt að 4 flugmenn á mánuði sem falla á áfengisprófi á Indlandi

- Flugmaður í 3 ára flugbann eftir að hann mætti ölvaður út á völl

11. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:30

Boeing 737-800 þota Air India Express

Töluvert hefur færst í aukanna að flugmenn og áhafnir falli á áfengisprófi á Indlandi en 24 prósenta aukning varð í fyrra á brotum á reglugerðum um áfengisnotkun þar í landi.

Flugmaður hjá Air India hefur verið settur í 3 mánaða flugbann eftir að hann féll á handahófskenndu áfengisprófi skömmu fyrir brottför á flugvellinum í Delhi.

Flugmaðurinn átti að fljúga Boeing 737 þotu Air India Express frá Delhi til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sl. laugardag þegar hann var látinn gangast undir áfengispróf sem gaf til kynna að hann hefði neitt áfengis.

Flugmenn á Indlandi sem falla á áfengisprófi fá 3 mánaða flugbann við
fyrsta brot

Air India segir að þar sem þetta var í fyrsta skipti sem hann féll á áfengisprófi þá var ákveðið að leysa hann af störfum í 3 mánuði.

Samkvæmt reglugerð frá indverskum flugmálayfirvöldum þá mega áhafnir ekki neita áfengis í 12 tíma fyrir flug en hver flugmaður eða flugliði sem fellur á áfengisprófi eða neitar að gangast undir slíkt próf við úrtak skal leystur af störfum og getur viðkomandi misst réttindi sín í allt að þrjá mánuði ef um fyrsta brot er að ræða.

Ef viðkomandi gerist ítrekað brotlegur hvað varðar áfengisnotkun getur sá hinn sami misst réttindi sín í allt að þrjú ár.

Að minnsta kosti 1 til 4 flugmenn á Indlandi falla á áfengisprófi í hverjum mánuði samkvæmt tölum frá flugmálayfirvöldum á Indlandi sem segja að þetta sé algengasta reglan sem áhafnir brjóta þar í landi er kemur að reglugerðum um flugöryggi.

Slíkum atvikum hefur farið fjölgandi en árið 2015 voru 49 áhafnarmeðlimir staðnir að því að vera undir áhrifum áfengis en í fyrra hafði þeim fjölgað í 61 atvik sem er 24% aukning á milli ára.

Flest tilvikin voru innan herbúða Air India árið 2016 en þá voru 24 flugmenn sem féllu á áfengisprófi, níu flugmenn hjá Indigo og 7 tilvik voru skráð meðal áhafna hjá SpiceJet.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga