flugfréttir

Talið að Boeing 737 MAX 10 verði kynnt til leiks í júní

- Hafa fundið lausn á vandamáli með hærra hjólastell

25. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:17

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 10

Sagt er að Boeing muni tilkynna um enn stærri útgáfu af Boeing 737 MAX þotunni í sumar.

Sú vél mun koma til með að heita Boeing 737 MAX 10 og er gert ráð fyrir að Boeing muni kynna vélina formlega til leiks á flugsýningunni Paris Air Show sem fram fer í júní.

Boeing 737 MAX 10 verður ætlað að etja kappi við Airbus A321neo þotuna og einnig ætlað að fylla að einhverju leyti í það gat sem Boeing 757 vélin skildi eftir sig þegar framleiðslu hennar var hætt árið 2004 en Boeing 737 MAX 10 mun þó ekki verða beinn arftaki hennar.

Randy Tinseth, markaðsstjóri Boeing, segir að Boeing 737 MAX 10 muni hafa lengra flugþol en Airbus A321neo þotan auk þess sem hún verður 2,8 tonnum léttari og þá segir Boeing að 737 MAX 10 verði einnig sparneytnari en Airbus A321neo.

Óþarfi að hanna lengra aðalhjólastell til að lengja Boeing 737 MAX enn frekar

Boeing 737 MAX 10 verður 43.8 metrar á lengd og mun vélin taka allt að 230 farþega á einu farrými en vélin mun koma með tveimur sætaröðum til viðbótar samanborið við Boeing 737 MAX 9 vélina.

Boeing 737 MAX 10 yrði 43.8 metrar á lengd en lengsta Boeing 737 vélin í dag, 737-900ER, 41.1 meter á lengd

Stærsti vandinn við lengri útgáfu af Boeing 737 MAX þotunni var sá að koma með stærri hreyfil sem er ógjörningur þar sem fjarlægðin frá hreyflinum ofan í jörðina er ekki nægilega mikil sem hefði krafist þess að lengja hjólastell vélarinnar til að gera hana „háfættari“.

Lengra hjólastell hefði kallað á miklar hönnunarbreytingar en Boeing segist vera búið að finna lausn á vandamálinu með því að nota sama LEAP-1B hreyfilinn og notaður er á hinum Boeing 737 MAX þotunum sem kemur með möguleika á virkja auka afl í flugtakinu úr 29.000 lbs upp í 31.000 lbs.

Með því væri hægt að komast hjá því að auka ummál hreyfilsins en samt sem áður þarf að endurstaðsetja aðalhjólastell vélarinnar en slíkt hefur verið gert við lengri útgáfur af öðrum þotum frá Boeing á borð við Boeing 777-300ER og Boeing 787-10.

Með einfaldari breytingum á hönnun á Boeing 737 MAX 10 þotunni er gert ráð fyrir að hún gæti mögulega komið á markaðinn árið 2020 og með því gæti Boeing farið mun fyrr í samkeppni við Airbus er kemur að Airbus A321neo þotunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga