flugfréttir
China Southern pantar 20 Airbus A350-900 þotur
A350 tilraunaþota Airbus í flugtaki
Kínverska flugfélagið China Southern Airlines hefur lagt inn pöntun til Airbus í 20 farþegaþotur af gerðinni Airbus A350-900.
Félagið segir að pöntunin sé gerð í þeim tilgangi að bregðast við gríðarlegum miklum umsvifum félagsins í millilandaflugi
á næstu árum en China Southern er 4. stærsta flugfélag heims er kemur að fjölda farþega á eftir Delta Air Lines, Southwest
Airlines og American Airlines.
Fyrstu Airbus A350-900 vélarnar verða afhentar árið 2019 og munu afhendingar standa yfir til ársins 2022 en sex
vélar verða afhentar fyrsta árið, sex árið 2020, fjórar árið 2021 og fjórar árið 2022.
Með þessari pöntun hefur Airbus fengið pantanir frá 45 flugfélögum og viðskiptavinum í 841 eintak af Airbus A350
þotunum en 10% af þeim hafa verið afhentar í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.