flugfréttir

Mun Lufthansa kaupa Alitalia?

- Alitalia verður selt hæstbjóðanda

27. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:34

Flugvélar Lufthansa og Alitalia við verksmiðjur Airbus

Svo gæti farið að ítalska flugfélagið Alitalia verði selt til Lufthansa en rekstur félagsins hefur verið í óvissu sl. 2 sólarhringa eftir að 67 prósent starfsmanna félagsins felldu nýjan rekstarsamning sem átti að koma félaginu til bjargar með aukafjármagni inn í reksturinn og niðurskurði.

Etihad Airways, sem á 49% í Alitalia, segir að félagið verði selt hæstbjóðanda og séu viðræður í gangi við Lufthansa sem er sagt velkomið að koma með tilboð í félagið.

Ítalska ríkisstjórnin segist ekki ætla að koma félaginu til bjargar eina ferðina enn en þó séu stjórnvöld í landinu reiðubúin til þess að lána félaginu um 46 milljarða króna sem skammtímalán til að halda rekstrinum á floti en í gær var greint frá því eftir heimildarmanni innan félagsins að Alitalia hefði aðeins rekstrarfé í 2 til 3 vikur til viðbótar.

Höfuðstöðvar Alitalia

Fjárfestar og bankar voru tilbúnir til þess að setja yfir 230 milljarða króna inn í reksturinn en sá „pakki“ kom með með niðurskurði og uppsögnum á 980 starfsmönnum og þá gerði ný rekstaráætlun ráð fyrir 8% launalækkun meðal flugmanna og annarra áhafna.

Um 11.000 starfsmenn kusu um samninginn og var hann felldur þar sem 67% þeirra sem kusu greiddu atkvæði gegn samningnum.

Graziano Delrio, samgönguráðherra Ítalíu, segir að það sé í höndum hluthafa til að taka ákvörðun um hvort að félagið verði selt til Lufthansa en flugfélagið þýska hefur ekki tjáð sig um málið.

Um 12.500 manns starfa hjá Alitalia en félagið hefur ekki skilað inn hagnaði í 15 ár eða frá árinu 2002 en rekstur þess var einkavæddur árið 2008.

Paolo Gentiloni, forsetisráðherra Ítalíu, tjáði sig um málið í gær sem hefur verið mikið til umræðu í ítölskum fjölmiðlum og segir hann að ríkisstjórnina hafi ekki „pláss“ til þess að taka Alitalia að sér og gera félagið ríkisrekið að nýju.

Gentiloni tók samt fram að ítölsk stjórnvöld myndu gera allt til þess að koma í veg fyrir að félagið yrði gert gjaldþrota en staðan væri þó erfiðari eftir að starfsmenn félagsins kusu gegn björgunaráætluninni og felldu samninginn.

Boeing 777 þota Alitalia

Samkvæmt ítalska dagblaðinu La Stampa þá mun Lufthansa taka að mestu leyti yfir allan rekstur Alitalia eins fljótt og mögulegt er ef Etihad Airways nær samningum við flugfélagið þýska.

Ef Lufthansa kaupir Alitalia yrði Evrópuflug Alitalia annaðhvort sameinað flugflota Eurowings sem gæti því tekið yfir markaðinn á Ítalíu með höfuðstöðvar í Róm og Mílanó eða haldið merki Alitalia áfram á lofti og rekið félagið sem dótturfélag líkt og Lufthansa hefur gerð með Austrian Airlines og SWISS sem eru bæði dótturfélög Lufthansa Group.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga