flugfréttir
Tveimur drónum flogið nálægt þotu í aðflugi að Heathrow
Tölvugerð mynd af dróna og Boeing 747 þotu British Airways / Myndin tengist ekki fréttinni beint
Flugmenn á farþegaþotu af gerðinni Airbus A320 tilkynntu um að hafa séð tvo dróna sem var flogið hættulega nálægt flugvélinni er hún var í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London.
Þetta er í fyrsta sinn í Bretlandi þar sem tilkynnt er um fleiri en einn dróna í einu sem er flogið í návígí
við flugvél en vélin var í 5.500 fetum í aðflugslínu yfir austurhluta Lundúna.
Flugmennirnir sögðu að fjarstýrðu flygildin hafi verið hvít á lit og hafi þeir haft þau í sjónmáli allan tímann
á meðan þeir fór framhjá þeim til að vera fullvissir um að sjá ef drónarnir myndu rekast á flugvélina.
Tilkynnt var um atvikið til lögregluyfirvalda en ekki tókst að hafa hendur í hári þeirra sem stjórnuðu flygildunum.
Talið er að fjarlægðin frá drónunum við flugvélina hafi verið um 500 metrar þegar minnstu munaði sem er
innan við lágmarksaðskilnað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.