flugfréttir
Hawaiian kynnir nýtt og endurhannað útlit
Nýja útlitið á flugvélum Hawaiian Airlines
Hawaiian Airlines hefur kynnt nýtt útlit á búning flugvélanna og verður floti félagsins málaður í þeim litum á næstu árum.
Ekki er um viðamiklar breytingar að ræða en grafískar breytingar hafa verið gerðar á merki félagsins
og mun útlit á stéli flugvélanna fá andlitslyftingu.
Kvenmannsandlit með blóm í hári hefur einkennt stélið á flugvélum Hawaiian Airlines frá árinu 1973 en merkið
hefur tekið breytingum gegnum árin en þó ætíð haldið fjólubláum, vínrauðum og appelsínugulum litum.
Mark Dunkerley, framkvæmdarstjóri Hawaiian Airlines, segir að breytingarnar séu hluti af breyttri ímynd
félagsins fyrir þau umsvif sem framundan eru með tilkomu nýrra þotna sem félagið á von á að fá
afhentar af gerðinni Airbus A330-800neo og Airbus A321neo.
Þá munu flugvélar félagsins fá silfurljósgrátt mynstur utan um miðjan skrokkinn og smá grafískar
breytingar verða gerðar á heildarhönnuninni á stélinu.
Hawaiian Airlines á von á því að taka á móti fyrstu Airbus A321neo þotunni á þessu ári og fyrsta
Airbus A330-800neo þotan er væntanleg árið 2019.
Nýtt merki félagsins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.