flugfréttir

Rolls-Royce og Icelandair fagna 60 ára samstarfi

2. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:41

Bruce Blythe, aðstoðarforstjóri Rolls-Royce Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóri Icelandair

Í dag fögnuðu Rolls-Royce og Icelandair 60 ára samstarfi sínu með stuttri athöfn sem fram fór í flugskýli félagsins á Keflavíkurflugvelli.

Bruce Blythe, aðstoðarforstjóri Rolls-Royce, afhenti Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair, minjagrip gerðan úr vélarhlutum í tilefni tímamótanna og farþegar Icelandair milli Bretlands og Íslands fá í vikunni glaðning frá Rolls-Royce.

Bruce Blythe segir Icelandair hafa sérstöðu meðal viðskiptavina Rolls-Royce vegna langrar samstarfssögu en einnig vegna viðhaldsárangurs og nýtingarmeta sem félagið hefur sett í notkun RB211 hreyfilsins.

Heimsmet var slegið árið 2000 þegar hreyfill hafði verið á sama vængnum samfellt í 40,531 flugstundir, eða sem svarar 37 ferðum til tunglsins og til baka.

Sextíu ára samstarfssaga Icelandair og Rolls-Royce nær yfir fjórar flugvélategundir sem nær aftur til ársins 1957 en fyrsta flugvél félagsins, til að bera hreyfil frá Rolls-Royce, var af gerðinni Vickers Viscount sem kom með Dart-hreyflum.

Flugvélategundirnar í sögu Icelandair sem hafa komið með hreyflum frá Rolls-Royce eru:

Vickers Viscount (1957 - 1967) – Dart-hreyflar
Canadair CL-44 (1964 - 1973) – Tyne-hreyflar
Fokker F27 Friendship (1965 - 1993) – Dart-hreyflar
Boeing 757 (1990 - í dag) – RB21—535E4 hreyflar

Icelandair er með 28 Boeing 757 þotur í farþegaflugflota sínum um þessar mundir sem allar eru með Rolls-Royce hreyfla. Félagið fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu.

Á myndinni afhendir Bruce Blythe, aðstoðarforstjóri Rolls-Royce Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóri Icelandair, minjagrip í tilefni samstarfsafmælisins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga