flugfréttir
Buddha Air stefnir á fyrstu þotukaupin
ATR skrúfuvél frá Buddha Air
Flugfélagið Buddha Air í Nepal stefnir á að kaupa sína fyrstu þotur en félagið er í viðræðum við Boeing um flugvélakaup.
Buddha Air er næst stærsta flugfélagið í Nepal á eftir Nepal Airlines en félagið hefur
eingöngu skrúfuvélar í flota sínum í dag sem samanstendur af sjö ATR flugvélum
og tveimur Beechcraft 1900D vélum.
Buddha Air ætlar að staðsetja Boeing 737 vélarnar á flugvellinum í Pokhara og fljúga þaðan
millilandaflug í stað þess að hafa vélarnar í höfuðborginni Kathmandu.
Ekki kemur fram hvaða flugvélategund kemur til greina en líklegast er að Boeing 737 vélar
verði fyrir valinu.
Buddha Air flýgur milli 11 áfangastaða í innanlandsflugi í Nepal auk þess sem félagið flýgur
til Indlands og til Bhutan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.