flugfréttir
Airbus byrjar að setja saman fyrstu A320 þotuna í Alabama
Fyrsta einingin af skrokknum af fyrstu Airbus A320 þotunni komin til Mobile í Alabama
Airbus hefur hafið samsetningu á fyrstu Airbus A320 þotunni sem smíðuð verður í Mobile í Alabama.
Hingað til hafa eingöngu Airbus A321 þotur verið framleiddar í Bandaríkjunum en nú hefur stærsta
einingin af skrokknum fyrir fyrstu Airbus A320 þotuna verið ferjaður til Alabama.
JetBlue fékk fyrsta eintakið af „bandarísku“ Airbus-þotunni í apríl í fyrra eftir að henni var ýtt út úr lokasamsetningu
í febrúar 2016 en síðan þá hafa verið afhent 27 eintök af Airbus A321 þotunni frá verksmiðjunni í Alabama.
Það verður Spirit Airlines sem mun fá fyrstu Airbus A320 þotuna afhenta úr verksmiðjunum í Bandaríkjunum
en vélin verður afhent í sumar til félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.