flugfréttir
Norwegian Air Argentina vel tekið af yfirvöldum í Argentínu
- Bíða þess að fá flugrekstarleyfi - Ráðningar flugmanna hefjast í sumar
Norwegian bíður þess að fá afhent flugrekstrarleyfi í Argentínu
Norwegian er að taka sín næstu skref í undirbúningi sínum fyrir fyrirhuguðum flugrekstri í Argentínu með stofnun flugfélagsins Norwegian Air Argentina.
Stjórn Norwegian Group hefur samþykkt áætlanir félagsins fyrir flugreksturinn í Argentínu og leiðarkerfisáætlun
félagsins bíður nú samþykkis hjá argentínskum stjórnvöldum.
Norwegian segir að stjórnvöld í Argentínu hafi tekið stjórnarmeðlimum Norwegian mjög vel og hlakkar flugfélagið
norska til þess að eiga áframhaldandi samstarf við yfirvöld í landinu.
Norwegian Group stofnaði Norwegian Air Argentina í janúar á þessu ári og er beðið eftir að félagið fá flugrekstarleyfi
í Argentínu bæði yfir innanalandsflugi og millilandaflugi til og frá landinu.
Þegar að argentínsk stjórnvöld hafa samþykkt öll leyfin mun Norwegian hefjast handa við að ráða stjórnarformenn
og yfirmenn í Argentínu og ráðning flugmanna og áhafna mun hefjast síðla sumars.
Vonast er til að hægt verði að opna fyrir miðasölu og selja fyrstu fargjöldin fyrir lok ársins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.