flugfréttir

Primera Air pantar allt að 20 Boeing 737 MAX 9 þotur

- Verða notaðar í fyrirhugað flug milli Evrópu og Bandaríkjanna

11. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:31

Boeing 737-700 þota Primera Air

Primera Air hefur lagt inn pöntun í allt að 20 farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX en en flugfélagið hefur gert samkomulag um kaup á átta þotum sem eru metin á 100 milljarða króna samkvæmt listaverði.

Pöntun Primera Air hljóðar upp á átta þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 9 sem verða pantaðar frá Boeing og aðrar átta þotur af sömu gerð sem verða teknar á leigu frá Air Lease Corporation en þá hefur félagið einnig tryggt sér rétt á fjórum þotum til viðbótar.

Á vefsíðu Boeing kemur fram að Boeing 737 MAX 9 þoturnar verða burðarásinn í fyrirhuguðu flugi Primera Air milli Evrópu og Bandaríkjanna en félagið mun nýta sér aukaeldsneytistank til að fljúga yfir Atlantshafið til austurstrandar Bandaríkjanna.

„Boeing 737 MAX 9 mun gera Primera Air kleift að að hefja beint flug frá Evrópu til Bandaríkjanna með mikilli hagkvæmni og mun þetta opna frábær tækifæri og möguleika fyrir umsvif Primera Air í framtíðinni“, segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Primera Travel Group.

Primera Air hefur eingöngu Boeing 737 þotur í flota sínum en floti félagsins telur í dag tvær Boeing 737-700 þotur og sjö vélar af gerðinni Boeing 737-800.

Ekki kemur fram hvenær Primera Air fær sína fyrstu Boeing 737 MAX 9 þotu afhenta en Boeing mun afhenda á þessu ári fyrsta eintakið af MAX 9 þotunni til Lion Air í Indónesíu en fyrsta Boeing 737 MAX þotan verður afhent í þessum mánuði til Malindo Air.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga