flugfréttir
Thai Airways fær aftur öryggisvottun frá ICAO
- Hafa náð að uppfylla aftur alþjóðlegar öryggiskröfur
Dreamliner-þota Thai Airways á flugvellinum í Bangkok
Tælenska flugfélagið Thai Airways hefur náð aftur að uppfylla alþjóðlegar kröfur sem flugfélög þurfa að uppfylla til að öðlast rétt til þess að fljúga til vestrænna landa.
Thai Airways hefur fengið nýtt flugrekstarvottorð frá flugmálayfirvöldum
í Thailandi við hátíðlega athöfn sem fram fór þann 8. maí í Bangkok.
Vottunin samræmist alþjóðlegri vottun frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og
fær félagið vottunina í hendurnar í kjölfar umfangsmikils átaks sem gert
hefur verið til að bæta öryggisatriði félagsins.
Þá er vonast til að vottunin muni bæta ímynd Thai Airways gagnvart farþegum en ferðamannaiðnaðurinn í Tælandi er mjög umfangsmikill og er Thai Airways
stærsta flugfélag landsins.
Öryggismál Thai Airways hafa verið undir smásjá frá ICAO frá árinu 2015 en
félagið hét því að verða eitt öruggasta flugfélagið í Asíu innan eins árs eftir úttekt sem gerð var á rekstri félagsins þá.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.