flugfréttir
Metfjöldi farþega um Heathrow í aprílmánuði
- Fleiri farþegar en færri flugtök og lendingar
Boeing 777-300ER þota Qatar Airways í lendingu á Heathrow-flugvelli
Aldrei hafa eins margir farþegar farið um Heathrow-flugvöllinn í London í apríl en í seinasta mánuði varð 11 prósenta farþegaaukning milli ára þrátt fyrir að Heathrow-flugvöllur sé orðin fullsetinn.
Samt sem áður þá voru 0.1% færri flugtök og lendingar á Heathrow en eina leiðin til að auka farþegafjölda um
Heathrow er með því að fljúga stærri vélum til vallarins.
Nokkur flugfélög hafa sent stærri
þotur til LHR á borð við risaþotuna Airbus A380 en í apríl fóru 6,7 milljónir farþega um völlinn eða um 223.000 farþegar á dag.
Fjölförnustu áfangastaðirnir sem flogið var til í apríl frá Heathrow voru New York og Dubai en þar á eftir koma Dublin,
Amsterdam og Hong Kong.
2.8 milljónir farþega flugu í apríl frá Heathrow-flugvelli til Evrópu, 1.5 milljón flaug til Norður-Ameríku og 931.000
flugu til Asíu.
John Holland-Kayne, framkvæmdarstjóri Heathrow, segir að þessi metaukning í apríl endurspegli þörfina
fyrir stækkun vallarins til að koma til móts við eftirspurnina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.