flugfréttir
LOT Polish Airlines fær sína fyrstu Boeing 737-800 þotur
Boeing 737-800 þota LOT Polish Airlines á flugvellinum í Madríd þann 14. maí
Pólska flugfélagið LOT Polish Airlines hefur fengið afhenta sína fyrstu Boeing 737-800 þotu en félagið hefur tekið fjórar slíkar á leigu frá flugvélaleigunni AerCap.
LOT Polish Airlines hefur þrjár Boeing 737 þotur fyrir í flotanum sem eru af gerðinni 737-400 en Boeing 737-800
vélarnar voru áður í flota China Eastern Airlines.
Félagið segir að fyrsta vélin hafi komið til Varsjár þann 10. maí sl. og hóf sú vél áætlunarflug þremur dögum síðar
og var fyrsta flugið farið frá Varsjá til Madrídar.
LOT mun nota vélarnar í flugi frá Varsjá til áfangastaða á borð við Amsterdam, Frankfurt, Kiev, Krakow, London Heathrow,
París, Tel Aviv og til Vínar.
Þá mun félagið nota Boeing 737-800 vélarnar í flugi til Astana í Kazakhstan en félagið mun hefja flug þangað þann
29 maí.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.