flugfréttir
COMAC stefnir á að hefja afhendingar á C919 árið 2020
C919 þotan frá COMAC
Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC stefnir á að afhenda fyrstu C919 farþegaþotuna árið 2020.
Að sögn heimildarmanns, sem er kunnugur málinu, þá er stjórn COMAC
að reikna út hvenær mögulegt er að afhenda fyrstu C919 þotuna
sem flaug sitt fyrsta tilraunaflug þann 5. maí.
Samt sem áður þá er talið á mörkunum að árið 2020 muni standast og
eru miklar líkur á því að afhendingum muni seinka til ársins 2021.
Fyrir nokkrum árum síðan stóð til að fljúga vélinni í fyrsta sinn árið 2016
og þá áttu afhendingar að hefjast árið 2019.
COMAC hefur í dag fengið pantanir í 570 eintök af C919 þotunni og þar
á meðal hafa borist pantanir frá nýju flugfélagi í Þýskalandi sem stendur
til að stofna sem kallast PuRen Airlines og frá City Airways í Tælandi.
Um 10% af þeim viðskiptavinum sem hafa pantað C919 þotuna
koma frá löndum utan Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.