flugfréttir

Flugumferð um London City verður fjarstýrð með mannlausum turni

- Flugumferðinni verður stjórnað frá Swanwick í 110 km fjarlægð

19. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:34

Flugumferðinni á London City flugvellinum verður frá og með árinu 2019 stjórnað frá stjórnstöð í Swanwick

London City flugvöllurinn hefur ákveðið að taka upp fjarstýrða flugumferðarstjórnun frá og með árinu 2019.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku flugmálastjórninni NATS og stendur til að reisa flugturn á London City flugvellinum sem verður mannlaus en með fjölda myndavéla og skynjurum þá verður flugumferðinni um völlinn stjórnað í 110 kílómetra fjarlægð frá stjórnstöð í Swanwick.

Nýtt stjórnherbergi mun koma með „panorama“ ásýnd yfir völlinn sem er varpað á marga skjái með útsendingu frá 14 háskerpumyndavélum auk tveggja „pan-tilt-zoom“ myndavéla sem verða staðsettar á nýja turninum á London City flugvellinum sem mun leysa af hólmi núverandi flugturn sem er 30 ára gamall.

Kerfið, sem nefnist Remote Tower Center (RTC) kemur með veðurbúnaði, hljóðnemum, ljósgeislakerfi ásamt öðrum tækjum sem senda upplýsingar til stjórnturnsins en með þessum hætti geta flugvélar lent og tekið á loft á flugvelli þótt ekki sé neinn á staðnum til að stýra umferðinni.

Remote Tower Center (RTC) er þróað af Saab í Svíþjóð

London City flugvöllurinn mun nýta sér fjarstýrt flugumferðarstjórnkerfi sem hefur verið þróað af Saab í Svíþjóð og munu prófanir hefjast árið 2018 og standa yfir í um eitt ár áður en kerfið verður tekið í notkun.

Myndavélarnar munu gefa 306°útsýni í kringum flugvöllinn í beinni útsendinu sem verður send með háhraðakapli til Swanwick og munu flugumferðarstjórar í stjórnstöðinni einnig heyra í flugvélunum þar sem útsendingin kemur með hljóði.

Myndavélarnar munu gefa nákvæmari sýn en mannsaugað nær að greina og þar að auki mun ný tækni gera flugumferðarstjórnina nákvæmari og hagkvæmari.

Flugumferðarstjórar munu hafa 360° útsýni yfir flugvöllinn með hljóði

London City flugvöllurinn verður sá fyrsti í Bretlandi sem mun taka í notkun fjarstýrða flugumferðarstjórn, sem á ensku nefnist „remote tower“ en þessi tækni hefur meðal annars verið tekin í notkun í Svíþjóð, Noregi, Ástralíu og á Írlandi.

„Stafrænir og mannlausir flugturnar eiga eftir að breyta flugumferðarstjórnun eins og við þekkjum hana í dag sem mun skila sér í hagkvæmni, auknu öryggi og lægri rekstrarkostnaði“, segir Mike Stoller hjá NATS.

Kerfið var fyrst tekið í notkun á flugvellinum í Ornskoldsvik í Svíþjóð en flugumferðinni um þann völl hefur verið stjórnað frá Sunsvall frá árinu 2015.

Írsk flugmálayfirvöld gerðu samning við Saab í Svíþjóð árið 2015 um uppsetningu á fjartengdri flugstjórnartækni á flugvellinum í Dublin en þaðan stendur til að stjórna flugumferðinni á flugvöllunum í Cork og á Shannon.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga