flugfréttir
Aeroflot höfðar mál gegn Sukhoi
Sukhoi Superjet 100 þota Aeroflot
Rússneska flugfélagið Aeroflot hefur höfðað mál gegn Sukhoi flugvélaframleiðandanum og verður málið tekið fyrir gerðardómi í Moskvu þann 6. júní næstkomandi.
Dómsmálið varðar samning Aeroflot á Sukhoi Superjet 100 þotunni sem var undirritaður
2. júní árið 2011 og fer Aeroflot fram
á 994 milljónir króna í skaðabætur en ekki kemur fram hver ástæðan er fyrir málsókninni.
Samkvæmt heimildarmanni, sem er kunnugur málinu, þá snýst málið um 10 fyrstu Sukhoi Superjet 100 þoturnar sem voru teknar á leigu er þríhliða samingur var gerður milli Aeroflot, Sukhoi
og VEB Leasing.
Samkvæmt samningnum átti Aeroflot að fá styrk frá rússnesku ríkisstjórninni til að greiða
leigugjöld á vélunum tíu en gerður var sáttmáli um að Sukhoi myndi taka leigukostnaðinn á sig
ef svo skildi fara að Aeroflot fengi ekki styrk frá rússneska ríkinu.
Svo fór að ríkisstjórnin greiddi engan styrk til Aeroflot vegna leigu á vélunum og kom því upp
ágreiningur milli Aeroflot og Sukhoi um þá skilmála sem komu fram á samningnum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Aeroflot höfðar mál gegn Sukhoi en í október árið 2012
fór flugfélagið rússneska í mál við flugvélaframleiðandann en dró málið til baka þremur dögum síðar.
Sukhoi hafði í apríl afhent 122 eintök af Sukhoi Superjet 100 þotunni en 65 af þeim þotum
hafa verið afhentar til flugfélaga í Rússlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.