flugfréttir
AirAsia sýnir C919 þotunni frá COMAC áhuga
Airbus A320 þota AirAsia á flugvelli í Tælandi
AirAsia hefur sýnt C919 þotunni frá COMAC áhuga en flugfélagið vinnur nú að því að stofna dótturflugfélag í Kína sem mun koma til með að heita AirAsia China.
AirAsia er eitt stærsta lágfargjaldafélag Asíu og stærsta flugfélagið
í Malasíu.
Datuk Kamarudin Meranun, framkvæmdarstjóri AirAsia, segir að félagið
sé að skoða möguleika á að leggja inn pöntun í C919 þotuna
en félagið hefur eingöngu þotur frá Airbus í flota sínum af gerðinni
Airbus A320, Airbus A320neo og Airbus A321.
„Kínverjar hafa komið mjög vel fram við okkur og viljum við því borga þeim til baka
eitthvað sem mun efla samskiptin enn frekar milli Malasíu og Kína“, segir
í yfirlýsingu frá AirAsia.
Móðurfélagið, AirAsia Group, á og rekur dótturfélögin AirAsia X, Thai AirAsia,
Indonesia AirAsia, Philippines AirAsia, AirAsia Japan, Thai AirAsia X, AirAsia India og Indonesia AirAsia X en til samans hafa öll félögin 173 þotur í flota sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.