flugfréttir

Delta með sjálfvirka töskuinnritun í flugi til Íslands

- Verður í boði á flugvellinum í St Paul-Minneapolis

1. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:06

Sjálfvirka töskumóttakan á flugvellinum í St Paul-Minneapolis notast við myndlesara og rafræn vegabréf til að tengja saman tösku og eiganda hennar.

Flugfélagið Delta býður upp á sjálfvirka innritun á töskum á flugvellinum í St Paul-Minneapolis í sumar. Farþegar Delta á leið til Íslands geta þá innritað sig að öllu leyti sjálfir ásamt töskunum.

Delta er fyrsta bandaríska flugfélagið sem tekur sjálfvirka töskuinnritun í notkun og hefur fjárfest fyrir 60 milljónir króna í búnaðinum. Farþegar með rafræn vegabréf geta innritað töskur sínar sjálfir. Myndlesari sér um að tengja andlit farþegans við vegabréfið í töskumóttökunni.

„Sífellt fleiri Íslendingar ferðast nú til Bandaríkjanna til að nýta sér sterkt gengi krónunnar,“ segir Jan Feenstra, sölustjóri Delta á Norðurlöndunum og í Hollandi. „Með því að bjóða upp á þessa sjálfvirku töskumóttöku er Delta að létta undir með farþegum á flugvellinum á heimleiðinni, gefa þeim meiri tíma og stuðla að sem ánægjulegustu upplifun með flugfélaginu. En að sjálfsögðu verður áfram hægt að innrita sig með hefðbundum hætti í brottfararsal Delta.“

Boeing 757-200 þota Delta Air Lines í flugtaki á Keflavíkurflugvelli

Daglegt áætlunarflug Delta milli Íslands og Minneapolis er nýhafið, annað árið í röð. Flogið verður daglega til 5. september. Delta flýgur allan ársins hring milli Íslands og New York.

„Áætlun Delta milli Íslands og Minneapolis gekk mjög vel í fyrra og því höfum við ákveðið að halda henni áfram,“ segir Dwight James, framkvæmdastjóri Atlantshafsflugs félagsins. „Á háannatímanum í sumar verðum við með alls 31 flugleiðir til 22 áfangastaða í Evrópu og þar af eru tvær þessara flugleiða til Íslands.“

Líkt og fyrri ár er flogið milli Íslands og Bandaríkjanna með Boeing 757 þotum Delta. Wi-fi tenging við internetið er í boði í fluginu. Í afþreyingarskjám við hvert sæti er boðið upp á rúmlega 300 sjónvarpsþætti, kvikmyndir, tónleika og leiki.

Innifalið í fargjaldi eru allar máltíðir, áfengir og óáfengir drykkir, innritaður farangur, handfarangur og sætaval. Á Delta One lúxusfarrýminu er boðið upp á sælkeramáltíðir og svefnsæti og á Delta Comfort+ farrýminu er aukið sætabil og hægt að halla sætum helmingi meira aftur en á almennu farrými.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga