flugfréttir

Wizz Air flýgur fyrstu flugin til Íslands frá Prag og Wroclow

- Flug til Íslands frá Riga hefst þann 25. júní

2. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:14

Airbus A320 þota Wizz Air á Keflavíkurflugvelli

Wizz Air bætti tveimur nýjum áfangastöðum við leiðarkerfi sitt til Íslands þann 31. maí sl. en félagið flaug þau fyrstu flugin til landsins bæði frá Prag í Tekklandi og frá Wroclow í Póllandi.

Wizz Air flýgur því nú til Keflavíkurflugvallar frá sjö áfangastöðum sem eru Búdapest, Gdansk, Katowice, Prag, Vilnius, Varsjá og Wroclow.

Áttundi áfangastaðurinn mun bætast við síðar í þessum mánuði en frá og með 25. júní mun félagið byrja að fljúga til Íslands frá Riga í Lettlandi.

Með þessu er Wizz Air komið í 3. sæti yfir þau flugfélög sem fljúga til flestra áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli á eftir Icelandair og WOW air.

Wizz Air mun fljúga tvisvar í viku til Íslands frá Prag og Wroclow og er flogið á miðvikudögum og laugardögum með farþegaþotum af gerðinni Airbus A320.

Wizz Air flýgur til Prag í samkeppni við Czech Airlines sem flaug sitt fyrsta flug í gær til landsins frá Prag en ekkert annað félag flýgur frá Keflavíkurflugvelli til Wroclow sem er fjórða stærsta borg Póllands með yfir 600.000 íbúa en á stórborgarsvæðinu er íbúafjöldinn 1.1 milljón.

Wizz Air mun með þessum tveimur áfangastöðum fljúga 14 flug á viku til Íslands.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga