flugfréttir
Harrison Ford heiðraður fyrir framlag sitt til flugsins
- Elsti flugklúbbur Ameríku færir leikaranum heiðursverðlaun
Harrison Ford tekur við heiðursverðlaunum Aero Club of New England á galakvöldi sl. laugardag
Harrison Ford var sérstakur gestur á uppskeruhátíð flugklúbbsins Aero Club of New England í Boston í Massachusetts sl. helgi.
Harrison Ford var meðal annars sæmdur heiðursverðlaunum
fyrir framlag sitt til flugsins og fyrir að hvetja ungt fólk til að velja flugið sem feril í leik eða starfi í samstarfi
við samtökin Experimental Aircraft Association (EAA).
Fögnuður flugklúbbsins fór fram með gala-kvöldverði á Seaport-hótelinu í Boston þar sem leikarinn
tók við Cabot-verðlaununum sem klúbburinn veitir.
Eitt sem vakti athygli á hátíðinni var nemandi sem þurfti að velja á milli þess að vera viðstaddur
útskrift í skólanum sínum eða mæta á uppskerukvöldverð flugklúbbsins - Hann valdi það síðarnefnda
en það kom honum svo sannarlega í opna skjöldu þegar Harrison Ford afhenti honum
prófskírteinið frá skólanum í stað skólastjórans fyrst hann var ekki viðstaddur útskriftina.
Flugklúbburinn Aero Club of New England er elsti flugklúbbur Ameríku og sá næstelsti í heimi en hann var stofnaðir
þann 2. janúar árið 1902 eða tveimur árum áður en Wright-bræðrum tókst að fljúga fyrsta flug mannkynsögunnar
en margar tilraunir höfðu verið gerðar til þess að fljúga á undan fyrsta fluginu.
Formenn Aero Club of New England færa Harrison Ford verðlaunin fyrir framlag sitt til flugsins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.