flugfréttir
Fyrsta flug Airbus A330neo áætlað fyrir lok sumarsins
Önnur Airbus A330-900neo þotan á verksmiðjusvæði Airbus í Toulouse
Airbus gerir ráð fyrir því að Airbus A330-900neo muni fljúga sitt fyrsta flug fyrir lok sumarsins en tvær fyrstu þoturnar hafa verið smíðaðar en aðeins önnur þeirra er komin með hreyfla.
Hreyflarnir koma frá Rolls-Royce og eru af gerðinni Trent 7000. - „Þeir hjá Rolls-Royce eru aðeins of seinir en
tilraunir með hreyflana hafa lofað mjög góðu“, sagði Fabrice Brégier, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus.
Vandamál kom upp með loftflæðikerfi hreyflanna (bleed air system) og þá hefur Rolls-Royce verið í vandræðum
með aðstöðu fyrir prófanir á hreyflunum.
Airbus á von á því að afhendingar muni hefjast um mitt árið 2018 en TAP Portugal mun fá fyrsta eintakið en alls
eru 10 flugfélög sem hafa pantað Airbus A330neo og þar á meðal WOW air en AirAsia X er með stærstu pöntunina í alls 66 þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.