flugfréttir
WTO sakar Boeing um að þiggja styrki frá Bandaríkjastjórn
Boeing 777-300ER í samsetningu í Everett
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) hefur komist að þeirri niðurstöðu að Boeing hafi þegið ólögmæta styrki á vissum sviðum frá bandarísku ríkisstjórninni og hafi flugvélaframleiðandinn haldið áfram að þiggja greiðslur sem stangast á við samkeppnislög.
Bæði Boeing og Airbus hafa sl. 13 ár eldað grátt silfur saman og verið inn á borði
hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni vegna gruns um að þiggja ólögmæta styrki og hefur
Airbus lengi sakað Boeing um slíkt.
Airbus fór inn á borð WTO árið 2004 eftir að í ljós kom að flugvélaframleiðandinn evrópski
hafði fengið styrki frá Evrópusambandinu vegna þróunnar og framleiðslu
á risaþotunni Airbus A380.
Fabrice Brégier, framkvæmdarstjóri Airbus, hefur ávalt vísað öllum ásökunum á bug
um styrki frá Evrópu til flugvélaframleiðslu en á sama tíma hefur hann bent á að
ólögmætir styrkir sem Boeing hefur þegið sl. ár hafi kostað Airbus fleiri hundruð milljarða
króna í sölutap.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.