flugfréttir
Norwegian tekur Boeing 757 á leigu yfir sumarið
Boeing 757-200 þota Privilege Style
Þótt að flugfloti norska flugfélagsins Norwegian samanstandi eingöngu af Boeing 737 þotum í flugi innan Evrópu þá mun félagið taka að minnsta kosti þrjár tegundir af öðrum þotum á leigu í sumar.
Að minnsta kosti átta flugfélög í sjö löndum munu leigja út vélar sínar til Norwegian
á meðan á sumarvertíðinni stendur en til að mynda mun félagið fá Boeing 757 þotu
sem mun fljúga fyrir Norwegian í júlí.
Boeing 757 þotan kemur frá spænska flugfélaginu Privilege Style og verður vélin
gerð út frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi en vélin verður notuð í flugi til Alicante,
Amsterdam, Barcelona, Faro, Helsinki, Krítar, Malaga, Nice, Olbia, Rhodos og Split.
Þá mun Norwegian einnig vera með Airbus A320 þotur í sumar og Boeing 737-400 þotur
en þær vélar eru teknar á leigu frá Blue Panorama, JetTime og Smartlynx.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.