flugfréttir
EasyJet fær sína fyrstu Airbus A320neo þotu
Fyrsta Airbus A320neo þotan fyrir easyJet á flugi þann 1. júní
EasyJet hefur fengið sína fyrstu Airbus A320neo þotu afhenta en félagið pantaði á sínum tíma 130 eintök af þessari flugvélategund en pöntuninni var síðar breytt yfir í þrjátíu Airbus A321neo vélar og 100 af gerðinni A320neo.
EasyJet segir að til standi að breyta pöntuninni aftur með því að taka enn fleiri Airbus A321neo vélar þar sem til standi
að gera flugrekstur félagsins hagkvæmari með því að fljúga stærri vélum til þeirra áfangastaða í Evrópu þar sem
sætanýting er mikil.
EasyJet er ekki eina félagið sem hefur breytt pöntun sinni yfir í stærri vélar því Wizz Air hefur einnig breytt hluta
af pöntun sinni í Airbus A320 yfir í Airbus A321.
Fyrsta Airbus A320neo þota easyJet er einnig þrjúhundruðasta þota félagsins í flotanum
EasyJet mun sennilega kom til með að nota Airbus A321neo þotur í flugi frá stærri flugvöllum þar sem erfiðara
er að fá afgreiðslupláss á borð við London Gatwick
Paris Orly og Amsterdam.
Þess má geta að fyrsta Airbus A320neo þota easyJet er einnig þrjúhundruðasta þota félagsins í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.