flugfréttir

Boeing kynnir 737 MAX 10

- Verður lengsta Boeing 737 þotan sem smíðuð hefur verið

19. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:40

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 10

Boeing hefur formlega kynnt til leiks nýja tegund af Boeing 737 MAX vélinni sem mun koma til með að heita Boeing 737 MAX 10.

Þetta var tilkynnt á flugsýningunni Paris Air Show sem hófst í morgun á Le Bourget flugvellinum en flugvélaleigan GECAS hefur lagt inn fyrstu pöntunina í Boeing 737 MAX 10 og mun taka tuttugu eintök af þotunni.

Í yfirlýsingu frá Boeing segir að alls hafi 10 viðskiptavinir staðfest pantanir í samtals 240 eintök af Boeing 737 MAX 10 og verða nöfn viðskiptavinanna tilkynnt á næstu dögum á flugsýningunni.

Vélin verður lengsta 737 MAX þotan og fjórða tegundin á eftir Boeing 737 MAX 7, MAX 8 og MAX 9 en einnig ber að nefna undirtegundina Boeing 737 MAX 200 sem kynnt var í september árið 2014.

Boeing 737 MAX 10 verður 43,8 metrar á lengd eða 1,6 metrum lengri en 737 MAX 9 og mun vélin taka 188 farþega á tveimur farrýmum en allt að 230 farþega í einu farrými.

Boeing 737 MAX 10 er ætlað að etja kappi við Airbus A321neo þotuna en alls hefur Boeing fengið pantanir í 3,699 Boeing 737 MAX þotur á meðan Airbus er komið með pantanir í 5.053 þotur úr A320neo-fjölskyldunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga