flugfréttir

Norwegian fær tvær fyrstu Boeing 737 MAX á einu bretti

- Lentu í Osló snemma í morgun eftir afhendingarflug frá Boeing Field

30. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:42

EI-FYA á Gardermoen-flugvelli í morgun eftir 9:18 klst flug frá Boeing Field

Boeing afhenti í gær tvær fyrstu Boeing 737 MAX þoturnar til Norwegian sem er annað flugfélagið í heiminum til þess að fá 737 MAX afhenta á eftir Malindo Air sem fékk þær fyrstu í seinasta mánuði.

Norwegian er jafnframt fyrsta flugfélagið til að fá vélarnar afhentar í Evrópu en flugfélagið norska á von á 106 Boeing 737 MAX 8 þotum til viðbótar á næstu árum.

Tvær fyrstu Boeing 737 MAX þotur Norwegian flugu í nótt afhendingarflugið frá Boeing Field í Seattle til Oslóar en vélarnar bera skráningarnúmerið EI-FYB og EI-FYA og eru báðar vélarnar skráðar á Írlandi.

Vélarnar flugu yfir Ísland á fimmta tímanum í nótt á leið sinni til Noregs en flugleiðin milli Seattle og Oslóar er yfir 7.300 kílómetra löng en EI-FYB lagði af stað hálftíma síðar.

Norwegian er fyrsta flugfélagið í Evrópu til að fá Boeing 737 MAX vélarnar

Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian, sagði við hátíðlega í Seattle í gær að flugfélagið væri búið að bíða eftir Boeing 737 MAX vélunum með mikilli eftirvæntingu en vélarnar verða bæði notaðar í flugi innan Evrópu auk flugs yfir Atlantshafið til austurstrandar Bandaríkjanna.

Flugleið vélanna í nótt frá Boeing Field til Osló

Þótt að Norwegian verði einnig fyrsta flugfélagið til að fljúga Boeing 737 MAX til Bandaríkjanna þá verður Southwest Airlines fyrsta bandaríska flugfélagið til að fá þessar vélar en American Airlines, Alaska Airlines og United Airlines hafa einnig pantað Boeing 737 MAX.

Fleiri myndir sem teknar voru áður en fyrstu vélarnar tvær lögðu af stað í afhendingarflugið til Oslóar í gær





















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga