flugfréttir

Air India hótar að skerða fríðindi starfsmanna sem tala illa um félagið

2. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:58

Airbus-vélar Air India

Air India hefur varað fyrrverandi starfsfólk sitt við því að tala illa um félagið sem það vann hjá og hefur stjórn þess hótað því að annars muni það hafa afleiðingar í för með sér.

Air India segir að það muni skerða starfslokafríðindi sem fyrrverandi starfsfólk félagsins nýtur ef það verður uppvíst að því að tala illa um gamla vinnustaðinn á samfélagsmiðlum.

Nokkur ólga ríkir meðal starfsmanna Air India eftir að ríkisstjórn Indlands samþykkti á dögunum leyfi til að einkavæða félagið en óvissa ríkir um hvort að félagið muni fá leyfi til að afskrifa 800 milljarða króna skuldir Air India til að laða að fjárfesta og hlutabréfaeigendur þegar félagið fer á almennan markað.

Air India hefur í dag aðeins 13% markaðshlutdeild af innanlandsfluginu í landinu þar sem flestir farþegar kjósa að fljúga með lágfargjaldafélögum á borð við SpiceJet og Indigo.

Alls hafa sjö starfsmannafélög skrifað bréf til ríkisstjórnar Indlands og hótað hópverkfallsaðgerðum ef félagið verður einkavætt.

„Það hefur nokkuð borið á því að starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn hafa talað niðrandi um félagið á samfélagsmiðlum sem svertir ímynd Air India“, segir í tilkynningu.

Fyrrverandi starfsmenn fá meðal annars frímiða með Air India og njóta annarra fríðinda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga