flugfréttir

Plássleysi að myndast á flugvellinum í Hong Kong

8. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:53

Frá Chep Lap Kok flugvellinum í Hong Kong

Chek Lap Kok flugvöllurinn í Hong Kong er óðum að fyllast en plássleysi er farið að skapast á vellinum sem er sá 8. stærsti í heimi þar sem hámarksnýtni hefur verið náð.

Chek Lap Kok flugvöllurinn var tekinn í notkun árið 1998 og tók hann við af hinum fræga Kai Tak flugvelli sem var lokað í kjölfarið.

Frá því í mars í vor þá hefur flugvellinum tekist að bæta við 20 flugtökum og lendingum á Chek Lap Kok við þær 1.150 flugtök og lendingar sem eiga sér stað á vellinum á hverjum degi.

Þrátt fyrir plássleysi þá er stefnt að því að fjölga daglegum flugtökum og lendingum upp í 1.200 fyrir árið 2020 sem er fjölgun upp á 50 flugferðir á dag til viðbótar.

Airbus A330 þota frá Cathay PAcific í flugtaki

Kínversk flugmálayfirvöld ætla að auka nýtni hvers afgreiðslupláss fyrir sig með hagræðingu í notkun þeirra en í dag fara 420.000 flugvélar um Chek Lap Kok flugvöllinn á ári.

Flugmálayfirvöld hafa áður varað við því að of mikil flugumferð fari um flugvöllinn í Hong Kong og hefur nú þegar verið komi með hugmyndir að færa fraktflug og einkaþotuflug á Zhuhai-flugvöllinn sem er staðsettur í 62 kílómetra fjarlægð til vesturs.

Gert er ráð fyrir að 8% aukning verði á flugumferð um Chek Lap Kok flugvellinum á þessu ári sem er m.a. tilkomið vegna aukinna umsvifa hjá Cathay Pacific sem hefur verið að stækka leiðarkerfið sitt með nýjum flugleiðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga