flugfréttir

10 ár frá því Dreamliner-þotan leit dagsins ljós í fyrsta sinn

- Þotan sem slegið hefur met en þó ekki vandræðalaust

9. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:01

Fyrstu Dreamliner-þotunni var ýtt úr samsetningarsal í Everett þann 8. júlí árið 2007

10 ár eru síðan að fyrstu Dreamliner-þotunni var ýtt út úr samsetningarsal hjá Boeing í Everett en fyrsta vélin leit dagsins ljós þann 8. júlí árið 2007.

Yfir 30.000 starfsmenn Boeing auk starfsmanna annarra fyrirtækja, sem hafa framleitt íhluti í vélina, fylgdust með athöfninni og þar af 15 þúsund starfsmenn Boeing sem voru á staðnum.

Þá voru yfir 100 milljón áhorfendur sem fylgdust með er vélinni var ýtt út úr skýli sem er sögð hafa verið ein stærsta beina útsending á Netinu á þeim tíma hjá einu fyrirtæki.

Fyrsta Dreamliner-þotan, sem bar skráninguna N787BA, var nokkurn veginn lítið annað en stórt flugvélamódel í stærðarhlutföllunum 1 á móti einum þar sem ekki var búið að tengja stjórnkerfi vélarinnar en framundan tóku við sjö seinkanir sem urðu til þess að vélin var ekki afhent fyrr en 4 árum síðar.

Seinkanir hjá birgjum, verkföll, vandamál með þyngd vélarinnar, hönnunarvandræði og vandamál með Trent 100 hreyfilinn setti strik í reikninginn en loks í október árið 2011 fékk japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) fyrstu Dreamliner-þotuna afhenta.

Frá athöfninni er N787BA var ýtt úr skýli fyrir 10 árum síðan

Ekki fækkaði vandamálunum eftir að ANA byrjaði að fljúga vélunum því síðar kom í ljós að afkastageta Dreamliner-vélanna var ekki að standast væntingar vegna þess hversu þungar vélarnar voru og árið 2013 voru þær kyrrsettar út um allan heim vegna vandamála með lithion-ion rafhlöður í rafgeymum.

Þrátt fyrir þessi vandamál þá hefur Dreamliner-þotan brotið blað í flugsögunni þar sem flugfélög hafa náð að fljúga beint flug milli tveggja áfangastaða sem annars hefði ekki verið hægt að öðru leyti og það með mjög sparneytnum hætti.

Boeing 787-8 var fyrsta eintakið sem afhent var árið 2011 en þremur árum síðar, eða þann 8. júlí árið 2014, tók Air New Zealand við fyrstu Boeing 787-9 þotunni og í maí í vor var fyrstu Boeing 787-10 vélinni ýtt úr skýli en Singapore Airlines mun fá fyrsta eintakið af þeirri vél árið 2018.

Boeing hefur í dag afhent yfir 560 eintök af Dreamliner-þotunni til 38 flugfélaga en ANA (All Nippon Airways) hefur flestar vélarnar eða 47 þotur í flotanum og þá er United Airlines komið með 30 vélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga