flugfréttir

Flugmenn Air Canada rugluðust á flugbraut og taxiway í lendingu

- Fjórar þotur voru á akstursbrautinni í bið eftir flugtaki

11. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:00

Vélin var í aðflugi að San Francisco að næturlagi um ellefu-leytið sl. föstudag þegar atvikið átti sér stað

Farþegaþota frá Air Canada var næstum því búin að lenda á akstursbraut á flugvellinum í San Francisco sl. föstudag en að minnsta kosti fjórar flugvélar voru á brautinni (taxiway) þegar Air Canada vélin tók stefnuna á hana í aðfluginu.

Vélin, sem var af gerðinni Airbus A320, var að koma frá Toronto og hafði vélin fengið leyfi til að lenda á braut 28R á San Francisco-flugvelli en flugmennirnir höfðu óvart tekið stefnuna á það sem þeir héldu að væri flugbrautin sem var hinsvegar „Taxiway C“ sem liggur samsíða flugbrautinni.

Flugumferðarstjóri gefur flugmönnunum á Air Canada vélinni leyfi til að lenda en flugmaðurinn sagðist sjá ljós og hreyfingu á flugbrautinni en flugumferðarstjórinn segir að það sé engin á braut 28R.

Skömmu síðar áttar flugumferðarstjórinn sig á því að vélin er að stefna á „taxiway“ og biður hann flugmennina um að fara í fráflug („go around“) og skömmu síðar heyrist hvar flugstjóri hjá United Airlines segir: „Air Canada flugvél flaug beint yfir okkur“.

Airbus A320 þota Air Canada á flugvellinum í San Francsico

Þá má heyra annan flugmann á tíðninni segja „Hvert er þessi að fara? - Hann er að stefna á akstursbrautina“.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið og segja að um mjög sjaldgæft atvik sé að ræða en meðal annars er verið að rannsaka hversu nálægt Air Canada vélin fór fyrir ofan vélarnar fjórar sem voru á brautinni.

Ross Aimer, fyrrverandi flugstjóri hjá United Airlines, segir í viðtali við fjölmiðla vestanhafs vegna atviksins að þarna hafi sennilega verið komist hjá einu mannskæðasta flugslysi sögunnar.

„Þú getur rétt ímyndað þér ef Airbus-þota rekst á fjórar aðrar farþegaþotur sem eru fullar af fólki, eldsneyti og farangri“, segir Aimer.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga