flugfréttir
Tólf Airbus A320neo þotur hjá fimm flugfélögum úr umferð
Airbus A320neo þota IndiGo Airlines
Tólf Airbus A320neo þotur hjá fimm flugfélögum í heiminum hafa verið kyrrsettar vegna vandamála með PW1000G hreyfilinn frá Pratt & Whitney.
Sjö af þessum A320neo þotum eru í flota indverska flugfélagsins IndiGo Airlines sem hefur 22 þotur í flotanum af þessari
gerð og eru því 15 vélar eftir sem eru á flugi.
IndiGo tók eina Airbus A320neo þotu úr umferð fyrr í þessum mánuði eftir að hafa verið nýbúið að taka fjórar
úr umferð í júní og tvær í maí.
Pratt & Whitney segir að verið sé að vinna að því að finna lausn á vandanum í samstarfi við Airbus og flugfélögin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.