flugfréttir
17. júlí er mannskæðasti dagurinn í sögu flugsins
- 10 ár frá flugslysinu í Sao Paulo og 3 ár frá MH17 í Úkraínu
17. júlí hefur verið ansi mannskæður í sögu flugsins
Dagurinn í dag, 17. júlí, ku vera versti dagur ársins er kemur að flugslysum samkvæmt vefsíðunni Aviation Safety Network en 17 flugslys hafa átt sér stað þennan dag frá árinu 1946 sem hafa samanlagt kostað 927 mannslíf og þá eru t.a.m. 10 ár í dag frá flugslysinu á Congonhas-flugvellinum í Sao Paulo.
Mannskæðasta atvikið, sem flokka má undir hryðjuverk, átti sér stað þann 17. júlí árið 2014
er Boeing 777 þota frá Malaysia Airlines fórst nálægt bænum Hrabobe í Úkraínu en talið
er að vélin hafi verið skotin niður með flugskeyti af jörðu niðri með þeim afleiðingum
að allir þeir 239, sem voru um borð, létu lífið.
Þá voru 230 manns sem létu lífð er júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-100 frá Trans World
Airlines, flug TWA800, fórst á þessum degi árið 1996 er hún sprakk í háloftunum yfir Atlantshafinu
skömmu eftir flugtak frá Kennedy-flugvellinum í New York en slysið er það 3. mannskæðasta
í Bandaríkjunum.
Boeing 747-100 þotan sem fórst á Kennedy-flugvelli í júní árið 1996, mánuði áður en hún fórst
Þriðja mannskæðasta flugslysið á þessum degi átti sér stað árið 2007 er Airbus A320
þota frá TAM Linhas Aéreas, fór út af flugbraut í lendingu í mikilli rigningu á Congonhas-flugvellinum
í Sao Paulo í Brasilíu.
Vélin fór út af flugvallarsvæðinu, yfir hraðbraut og hafnaði á vöruhúsi með þeim afleiðingum
að allir þeir 187 farþegar, sem um borð voru auk sjö manna áhafnar, lét lífið auk tólf á jörðu niðri.
Flugslysið hjá TAM í Sao Paulo er það mannskæðasta í sögu Brasilíu
Slysið er það mannskæðasta sem hefur orðið í Brasilíu auk þess sem slysið er einnig það mannskæðasta
er kemur að Airbus A320 þotunni.
Frá 1994 til 1998 versta tímabilið
Þriðjungur þessarra 18 flugslysa áttu sér stað frá árinu 1946 til ársins 1963 en því næst leið 31 ár þar
til næsta flugslys átti sér stað á 17. júlí sem varð árið 1994 er Yakevlov 40 þota fórst í Kongó er hún
rann út af braut í lendingu.
Í þremur slysum var um að ræða flugvél af gerðinni Curtiss C-46 Commando sem er tveggja
hreyfla skrúfuflugvél sem smíðuð var fyrst árið 1941 en í þremur slysum átti DHC-6 Twin Otter vél hlut
af máli og þá eru þrjár þotur frá Boeing sem fórust á þessum degi en þær voru af gerðinni Boeing 747-100, Boeing 737-200 og Boeing 777-200ER.
Mesta tíðn flugslysa á þessum degi var frá árinu 1994 til ársins 1998 en þá leið enginn 17. júlí án flugslysa í heiminum og þar af tvö árið 1994 og tvö árið 1996.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.