flugfréttir
British Airways mun fljúga til Íslands frá London City
- Fljúga yfir veturinn með Embraer-þotum
Embraer E190 þota British Airways á London City flugvellinum
British Airways mun hefja flug til Íslands í haust frá London City flugvellinum en félagið flýgur nú þegar hingað til lands frá Heathrow-flugvellinum í London.
British Airways tilkynnti í gær þrjá nýja áfangastaði sem flogið verður til frá London City sem eru
París, Reykjavík (Keflavík) og Prag.
Aðeins verður flogið til Íslands frá London City flugvellinum á veturnar og mun
flugið hefjast þann 29. október en flogið verður á fimmtudögum og sunnudögum fram
til enda 18. mars 2018 og verður
flogið með Embraer-þotum af gerðinni E190SR.
Embraer E190 er ný flugvélategund sem bætist í flóruna á Keflavíkurflugvelli en
Flybe flaug til Íslands með Embreaer E175 vélum sumarið 2014.
Embraer 190 er algengasta þotan úr E-fjölskyldunni hjá Embraer en yfir 530
vélar af þeirri gerð eru í umferð í heiminum í dag.
JetBlue hefur flest eintökin í flota
sínum, alls 60 þotur og þá er E190 þotuna einnig að finna í flota Air Canada, American Eagle,
KLM CityHopper, Azul Brazilian Airlines og fleiri flugfélögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.