flugfréttir
Mesta næturfrost sem mælst hefur í 33 ár í Ástralíu
- Mikið álag á áfísingu á flugvellinum í Canberra
Farþegaþota frá QantasLink afísuð að morgni til í næturfrostinu
Sjaldan hefur hitastigið farið eins lágt á nóttunni í Canberra í Ástralíu og raunin hefur verið seinustu daga.
Mikið álag hefur verið á starfsmönnum flugvallarins í Canberra við að afísa flugvélarnar á vellinum
en seinustu daga hefur næturfrostið farið undir -2°C gráður sem er lægsti hiti sem mælst hefur
í áströlsku höfuðborginni í 33 ár.
Miklir þurrkar hafa verið í Canberra og þrátt fyrir að hitinn fari upp í 14 gráður yfir daginn
þá hefur útgeislunin verið það mikil að mikið næturfrost verður á nóttunni og snemma á morgnanna.
Búist er við seinkunum í dag og næstu daga þar sem allir afísingarbílarnir eru í notkun á morgnanna
en gert er ráð fyrir að næturnar fari að verða hlýrri næstu daga þar sem veðurfræðingar spái því að það
fari að þykkna upp og dregur þá úr næturfrostinu.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.