flugfréttir
2.500 Falcon-einkaþotur afhentar frá upphafi
Starfsmenn Dassault mynda töluna 2.500 í tilefni þess að hafa náð þessum áfanga
Franski flugvélaframleiðandinn Dassault Aviation afhenti á dögunum sína tvöþúsund og fimmhundruðustu Falcon-einkaþotu frá upphafi.
52 ár eru liðin frá því fyrsta Falcon-einkaþotan var afhent árið 1965 sem var af gerðinni Falcon 20.
Falcon-einkaþotan, sem er númer 2.500 í röðinni, er af gerðinni Falcon 900LX og var hún afhent
frá samsetningarstöð Dassault í Little Rock í Arkansas í lok júnímánaðar en ekki kemur fram
hver viðskiptavinurinn er.
„Með stöðugri þróun í gegnum margar kynslóðir þá hefur Falcon viðhaldið þeirri stöðu að vera tákn
í iðnaðinum frá því fyrsta Falcon 20 þotan kom á markaðinn árið 1965“, segir í yfirlýsingu frá Dassault.
Yfir 2.100 Falcon-einkaþotur eru enn í umferð í heiminum í dag meðal 1.230 viðskiptavina í 90 löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.