flugfréttir
Boeing 737 raskaðist í flugtaki vegna vængendahvirfla frá A321
Boeing 737-800 þota frá WestJet í flugtaki
Flugmálayfirvöld í Kanada rannsaka atvik sem átti sér stað á flugvellinum Í Los Angeles sl. mánudag er flugmenn á Boeing 737 þotu frá WestJet lentu í vandræðum með stjórn vélarinnar í flugtaki.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737-800, var komin í um 500 feta hæð frá brautinni eftir
flugtak áleiðis til Calgary þegar vélin lenti í snarpri ókyrrð
sem kastaði vélinni til hliðar með þeim afleiðingum að sjálfstýringin aftengdist.
Flugmennirnir tóku við handheldri stjórn, leiðréttu hallann og stefnuna, létu
flugumferðarstjóra vita og héldu áfram fluginu.
Flugmálayfirvöld lýstu því yfir í gær að orsökina megi rekja til farþegaþotu
af gerðinni Airbus A321, sem fór í loftið á undan sem varð til þess að Boeing 737 þotan
varð fyrir vængendahvirflum hennar.
Fram kemur að flugumferðarstjórar höfðu gert ráð fyrir réttum aðskilnaði milli vélanna
í flugtaki.
Um borð í Boeing 737 vélinni voru 137 farþegar og sex manna áhöfn en engann af þeim sakaði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.