flugfréttir
South African í miklum rekstrarerfiðleikum
- Fara fram á 102 milljarða króna lán til viðbótar frá ríkisstjórninni
Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg
Rekstur suður-afríska flugfélagsins South African Airways stendur nú mjög höllum fæti en félagið hefur farið þess á leit við ríkisstjórn Suður-Afríku um að fá 102 milljarða króna lán til að halda rekstri félagsins gangandi.
Aðeins er einn mánuður frá því að félagið fékk 17 milljarða króna fé inn í reksturinn til að halda starfseminni
gangandi auk þess til að greiða niður skuldir.
Einhverjir fréttamiðlar greina frá því að South African Airways sé á barmi gjaldþrots en Malusi Gigaba, fjármálaráðherra Suður-Afríku, segir að ákvörðun um frekari lán til félagsins verði tekin í október.
Þrátt fyrir að South African Airways gangi erfiðlega með að ná inn tekjum til að halda rekstrinum gangandi þá segir stjórn
félagsins að mögulega muni Sout African geta farið að skila hagnaði fyrir árið 2019.
Ríkisstjórn landsins segir að flugfélagið verði virkilega að taka sig saman í andlitinu og fylgja nýrri rekstaráætlun sinni en einn
talsmaður fjármálaráðuneytisins segir að í raun og veru ætti South African að lýsa yfir gjaldþroti.
South African hefur ráðið nýjan fjármálastjóra til starfa sem talinn er hæfari en sá sem lét af störfum nýlega og er vonast
til að hægt verði að snúa rekstrinum aftur á réttan kjöl.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.